Romelu Lukaku framherji Manchester United segist vera að létta sig til að ná flugi aftur í ensku úrvalsdeildinni.
Lukaku byrjaði tímabilið ömurlega en hefur nú skorað tvö mörk í síðustu þremur leikjum ársins.
Hann segist hafa bætt á sig vöðvamassa fyrir HM í Rússlandi sem hann reyni nú að losa sig við.
,,Ég reyni að losa mig við vöðva, ég verð að gera það,“ sagði Lukaku.
,,Mér leið frábærlega á HM en í ensku úrvalsdeildinni getur þú ekki haft sama magn af vöðvum.“
,,Þegar ég kom til baka þá vissi ég að þetta myndi aldrei virka.“