Raheem Sterling leikmaður Manchester City hefur tjáð lögreglunni að hann hafi orðið fyrir kynþáttaníði á laugardag.
Chelsea varð fyrsta liðið á tímabilinu til að vinna City í deildinni en liðið var taplaust fyrir viðureignina.
Þeir N’Golo Kante og David Luiz sáu um að skora mörk Chelsea en þau komu bæði eftir sendingu frá Eden Hazard.
Það skemmtu flestir stuðningsmenn Chelsea sér vel og virtist fólk haga sér almennt nokkuð vel í stúkunni.
Einn ákveðinn stuðningsmaður varð sér og félaginu þó til skammar er hann öskraði á Raheem Sterling, leikmann City.
Það er augljóst hvað maðurinn segir við Sterling en um kynþáttarfordóma er að ræða. ,,Farðu til fjandans, svarti ræfill,“ sagði stuðningsmaðurinn.
Lögreglan rannsakar nú málið en Chelsea hefur fundið út úr því hvaða einstaklingur sagði þessi orð. Lögreglan í London gerði sér ferð til Manchester í gær til að ræða við Sterling og starfsmenn Manchester City.