Það fóru fram níu leikir í ensku úrvalsdeildinni um helgina en Liverpool er komið á toppinn.
Lærisveinar Jurgen Klopp unnu sigur á Bournemouth en Manchester City tapaði gegn Chelsea.
Manchester United vann sigur og eru þrír leikmenn liðsins í liði helgarinnar.
Arsenal heldur áfram að gera vel og sömu sögu er að segja af Tottenham.
Lið helgarinnar hjá BBC er hér að neðan.