Kingsley Coman, leikmaður Bayern Munchen, er tilbúinn að hætta í fótbolta ef hann þarf að fara í aðra aðgerð.
Coman var á sínum tíma talinn einn efnilegasti leikmaður heims en hann er 22 ára gamall og kom til Bayern árið 2015 frá Juventus.
Meiðsli hafa sett stórt strik í reikning Coman á árinu og hefur þurft að fara í tvær aðgerðir. Hann er nú að snúa aftur á völlinn.
,,Þetta var virkilega erfitt ár. Þegar ég meiddist þá var það eins og heimsendir fyrir mig,“ sagði Coman.
,,Ég vona að ég þurfi ekki að upplifa þetta aftur. Þetta er komið gott. Ég mun ekki fara í mína þriðju aðgerð.“
,,Ef ég þarf þess þá er fóturinn minn ekki gerður fyrir þetta. Ég mun þá lifa öðru lífi, leyndu lífi.“