Adam Örn Arnarson hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Álasund í Noregi.
Álasund mistókst að koma sér upp í efstu deild í gær þegar liðið tapaði gegn Stabæk í umspili.
Adam hefur verið í þrjú ár hjá félaginu en hann kom til félagsins frá Nordsjælland.
,,Ég hafði átt samtal við félagið um að leiðir skildu skilja ef við færum ekki upp,“ sagði Adam við heimasíðu félagsins.
Hólmbert Aron Friðjónsson, Aron Elís Þrándarson og Daníel Léo Grétarsson er áfram í herbúðum félagsins.