Joe Gomez varnarmaður Liverpool verður frá í um sex vikur vegna meiðsla sem hann varð fyrir í vikunni.
Gomez meiddist í 1-3 sigri á Burnley á miðvikudag en enski varnarmaðurinn er lykilmaður hjá Jurgen Klopp.
Bein í fæti hans brákaðist og er Gomez nú að ganga um á hækjum og í spelku.
Þessi öflugi leikmaður hefur verið óheppin með meiðsli á ferli sínum, nú þegar hann hefur stimplað sig inn kemur aftur bakslag.