Jamie Carragher er enn að fagna sigri Liverpool á Everton á sunnudag og var mættur út á lífið í gær.
Carragher lék alla tíð með Liverpool en fyrst og síðast er hann harður stuðningsmaður félagsins.
Carragher er sérfræðingur hjá SKy Sports en hann var mættur á skemmistað í borginni í gær.
Þar var hann með hárkollu og fór upp á svið og dansaði, þar vakti athygli að Steven Gerrard var á skjánum í Liverpool treyju.
Fólkið í salnum hafði gaman af en myndband af þessu er hér að neðan.