Þeir Gunnar Þór Gunnarsson og Sindri Jensson hafa skrifað undir nýja samning við lið KR í Pepsi-deild karla.
Þetta staðfesti félagið í dag en báðir leikmennirnir skrifuðu undir samninga sem gilda til ársins 2020.
Sindri hefur verið í KR undanfarin fjögur ár og varð bikarmeistari með félaginu árið 2014.
Sindri hefur þó verið varamarkvörður liðsins en hann á að baki 15 keppnisleiki fyrir félagið.
Gunnar kom til liðsins árið 2011 og á að baki yfir 100 leiki fyrir þá svarthvítu. Hann varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2013.