Það var hart tekist á þegar Juventus tók á móti Manchester United í Meistaradeild Evrópu í gær.
United byrjaði með ágætum en fljótlega fór Juventus að taka undirtökin, það var svo Cristiano Ronaldo sem kom Juventus yfir. Hann hamraði boltann í net United í síðari hálfleik.
Allt stefndi í sigur Juventus þegar hinn snjalli, Juan Mata skoraði beint úr aukaspyrnu. Hann hafði komið inn sem varamaður í leiknum. Það var svo á 90 mínútu sem United tryggði sér sigur en það var sjálfsmark hjá Alex Sandro sem gerði það. United með sjö stig en Juventus með níu stig á toppnum. Bæði lið tryggja sig áfram í næstu umferð með sigri.
Paul Pogba var þarna að heimsækja sinn gamla heimavöll með United en hann missti af flugi liðsins heim.
Ástæðan er sú að Pogba var tekinn í lyfjapróf og var lengi að ná að pissa eftir leik. Liðsfélagar hans fóru því á undan honum.
Pogba fékk hins vegar flug klukkutíma síðar með stuðningsmönnum United sem voru á leið heim til Manchester.