Það var hart tekist á þegar Juventus tók á móti Manchester United í Meistaradeild Evrópu í gær. United byrjaði með ágætum en fljótlega fór Juventus að taka undirtökin, það var svo Cristiano Ronaldo sem kom Juventus yfir. Hann hamraði boltann í net United í síðari hálfleik.
Allt stefndi í sigur Juventus þegar hinn snjalli, Juan Mata skoraði beint úr aukaspyrnu. Hann hafði komið inn sem varamaður í leiknum. Það var svo á 90 mínútu sem United tryggði sér sigur en það var sjálfsmark hjá Alex Sandro sem gerði það. United með sjö stig en Juventus með níu stig á toppnum. Bæði lið tryggja sig áfram í næstu umferð með sigri.
Fagn Ronaldo vakti mikla athygli gegn sínu gamla félagi, hann reif upp bolinn og sýndi flotta magavöðva sína.
Jesse Lingard, leikmaður United gerir grín að þessu fagni hans í dag og ber saman magavöðva þeirra. ,,Hvor gerir þetta betur?,“ skrifar Lingard.
Myndina má sjá hér að neðan.
Who Did It Better? ?? #99Physicality #CR pic.twitter.com/1anTYAXvrc
— Jesse Lingard (@JesseLingard) November 8, 2018