Það var hart tekist á þegar Juventus tók á móti Manchester United í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
United byrjaði með ágætum en fljótlega fór Juventus að taka undirtökin, það var svo Cristiano Ronaldo sem kom Juventus yfir. Hann hamraði boltann í net United í síðari hálfleik.
Allt stefndi í sigur Juventus þegar hinn snjalli, Juan Mata skoraði beint úr aukaspyrnu. Hann hafði komið inn sem varamaður í leiknum.
Það var svo á 90 mínútu sem United tryggði sér sigur en það var sjálfsmark hjá Alex Sandro sem gerði það. United með sjö stig en Juventus með níu stig á toppnum. Bæði lið tryggja sig áfram í næstu umferð með sigri.
Eftir leik gekk Jose Mourinho, stjóri United inn á völlinn og var að biðja þá sem að efast um að halda áfram að tala.
Leonardo Bonucci og aðrir leikmenn Juventus voru óhressir með hegðun hans en gæslan kom öllu í ró.
Þetta má sjá hér að neðan.
Mourinho is back pic.twitter.com/J1IhVnQQR3
— Andrew Smyth (@ANJSmyth) November 7, 2018