fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
433

KA hefur tryggt sér starfskrafta Hauks Heiðars

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 29. nóvember 2018 15:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Haukur Heiðar Hauksson hefur tekið ákvörðun um að skrifa undir hjá KA. Þetta herma öruggar heimildir 433.is.

Haukur er samningslaus en hann lék með AIK í Svíþjóð. Haukur er staddur í Reykjavík þessa stundina en hefur ákveðið að snúa aftur heim.

,Föstudagsframsagan hefur slegið í gegn og núna á föstudaginn leggjum við allt undir! Fjölmiðlamaðurinn Tómas Þór Þórðarson mætir í KA-Heimilið og fer yfir fótboltann hjá KA undanfarin ár eins og honum einum er lagið,“ segir á viðburði KA á Facebook.

Þá kemur fram að félagið muni endurnýja samninga og vonast til að fá nýja leikmenn. Stefnt er að því að Haukur verðir kynntur til leiks.

,,Þá verður knattspyrnudeild með pennann á lofti og endurnýjar samninga auk þess sem vonandi verða gerðir einhverjir nýir.“

Haukur ólst upp í KA en hann fór til KR til að leika í efstu deild, þar lék hann í nokkur ár áður en hann fór til AIK árið 2015.

Haukur Heiðar er hægri bakvörður og miðvörður en hann var í landsliðshópi Íslands á EM árið 2016.

KA ætlar sér í toppbaráttu en Óli Stefán Flóventsson tók við liðinu í haust og hefur fyrir fengið Guðjón Pétur Lýðsson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Urðar yfir Bruno Fernandes – Kallar hann rottu og vesaling

Urðar yfir Bruno Fernandes – Kallar hann rottu og vesaling
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Andri Lucas Guðjohnsen í einlægu viðtali – Þetta er það sem pabbi hans sagði honum er hann var ungur

Andri Lucas Guðjohnsen í einlægu viðtali – Þetta er það sem pabbi hans sagði honum er hann var ungur
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ten Hag vill fá stuðning frá Ratcliffe – Tilbúinn að stíga til hliðar

Ten Hag vill fá stuðning frá Ratcliffe – Tilbúinn að stíga til hliðar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Silva staðfestir að hann sé búinn að taka ákvörðun – ,,Fáið að vita það á næstu dögum“

Silva staðfestir að hann sé búinn að taka ákvörðun – ,,Fáið að vita það á næstu dögum“