fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433

Fjórir sóttu um að verða yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 28. nóvember 2018 13:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórir aðilar sóttu um að verða yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ, þrír af þeim höfðu þá menntun sem sett voru fram. Þetta kemur fram í fundargerð sambandsins.

KSÍ hafði auglýst starfið laust og var hægt að sækjaum starfið til 15 nóvember. Nú hefur verið ákveðið að fresta því að ráða í starfið.

Guðni Bergsson, formaður KSÍ vill koma starfinu af stað en ákvaða að bíða fram yfir ársþing. Þar verður málið rætt með fulltrúum félaga í landinu.

,,Framkvæmdastjóri KSÍ kynnti skipurit skrifstofunnar sem hefur tekið nokkrum breytingum frá síðustu umræðu á stjórnarfundi í apríl. Fjórir sóttu um um stöðu yfirmanns knattspyrnumála og hafa þrír umsækjendur þá menntun sem gerð var krafa um,“
sagði í fundargerð KSÍ.

,,Stjórn KSÍ ákvað að kynna málið frekar fyrir aðildarfélögum sínum áður en lengra er haldið og verður það kynnt á formanna- og framkvæmdastjórafundi KSÍ 24. nóvember og einnig á vinnustofu í tengslum við ársþing. Ennfremur mun koma fram í greinargerð með fjárhagsáætlun 2019 að gert sé ráð fyrir þessari stöðu í fjárhagsáætlun. Framkvæmdastjóra og formanni var falið að senda umsækjendum upplýsingar um að staðan sé enn til umfjöllunar og verði fram yfir ársþing.“

Ekki er ljóst hvaða fjórir aðilar sóttu um en sterkar sögur er um að Sigurður Ragnar Eyjólfsson hafi verið einn þeira aðila.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Nú líklegast að hann fari til Spánar

Nú líklegast að hann fari til Spánar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“