fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
433

Falcao klikkaði á punktinum gegn fyrrum félögum – Schalke og Porto áfram

Victor Pálsson
Miðvikudaginn 28. nóvember 2018 19:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Atletico Madrid hefur tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir leik gegn Monaco í kvöld.

Atletico hafði betur nokkuð örugglega 2-0 og á Monaco þá nánast enga möguleika á að ná þriðja sætinu sem gefur sæti í Evrópudeildinni.

Atletico komst yfir eftir aðeins tvær mínútur en Benoit Badashile varð þá fyrir því óláni að skora sjálfsmark fyrir gestina.

Á 24. mínútu leiksins kom svo annað mark Atletico er Antoine Griezmann skoraði eftir laglegan undirbúning Angel Correa.

Monaco fékk gullið tækifæri til að gera leikinn spennandi á 82. mínútu leiksins er liðið fékk vítaspyrnu. Boltinn fór í hönd Stefan Savic innan teigs og fékk hann einnig sitt annað gula spjald.

Radamel Falcao, fyrrum leikmaður Atletico, steig á punktinn fyrir Monaco en skaut framhjá. Lokastaðan því 2-0.

Lokomotiv Moskva vann góðan 2-0 heimasigur á Galatasaray á sama tíma og nældi í sín fyrstu þrjú stig.

Liðið getur ekki komist í 16-liða úrslit en mun berjast við tyrknenska liðið um sæti í Evrópudeildinni í lokaumferðinni. Schalke og Porto eru bæði komin í 16-liða úrslit í þeim riðli.

Atletico Madrid 2-0 Monaco
1-0 Benoit Badiashile(sjálfsmark, 2′)
2-0 Antoine Griezmann(24′)

Lokomotiv Moskva 2-0 Galatasaray
1-0 Ryan Donk(sjálfsmark, 43′)
2-0 Vladislav Ignatjev(54′)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Nú líklegast að hann fari til Spánar

Nú líklegast að hann fari til Spánar
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“