,,Ef þú finnur fyrir pressu, vertu þá bara heima,“ sagði Jose Mourinho stjóri Manchester United um leikmenn sína fyrir leikinn gegn Young Boys í kvöld.
Leikmenn United hafa verið afar slakir á þessu tímabili og er liðið í veseni í ensku úrvalsdeildinni.
United tryggir sig hins vegar áfram í Meistaradeildinni í kvöld með sigri. Gengi liðsins á Old Trafford hefur hins vegar ekki verið gott.
,,Þegar ég tala um heima, þá er ég ekki að tala um Old Trafford. Ég er að tala um heimili þitt og horfðu a´leikinn í sjónvarpi.“
,,Ef þú segir að það sé pressa að spila á heimavelli fyrir framan þína stuðningsmenn? Nei, ég finn aldrei fyrir því.“