Sadio Mane, leikmaður Liverpool, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið.
Þetta var staðfest í gær en Mane er sagður gera fimm ára samning sem gildir til ársins 2023.
Þessi 26 ára gamli leikmaður kom til Liverpool fyrir tveimur árum en hann lék áður með Southampton.
Mane er fastamaður í liði Liverpool undir stjórn Jurgen Klopp og spilar flesta leiki liðsins.
Sagt er í dag að Mane muni fá rúmlega 150 þúsund pund á viku og verður hann því einn launahæsti leikmaður félagsins.
Þrátt fyrir að Liverpool sé að berjast á toppnum er félagið ekki að borga þau laun sem Manchester City og United gera.