Manchester United vill fá varnarmanninn Nikola Milenkovic frá Fiorentina í janúar. Sky Sports greinir frá.
Milenkovic hefur áður verið orðaður við United en hann er orðinn fastamaður hjá Fiorentina.
Serbinn er aðeins 21 árs gamall og mun United reyna að fá hann í janúar eða í sumar ef hann er ekki til sölu í byrjun næsta árs.
Jose Mourinho þarf á varnarmanni að halda en United hefur fengið á sig 21 mark í 12 deildarleikjum.
Mario Cognigni, stjórnarformaður Fiorentina, sagði í september að félagið hafi hafnað tilboði upp á 36 milljónir punda í sumar.