Eiður Smári Guðjohnsen átti magnaðan feril sem knattspyrnumaður, fullyrða má að enginn hafi náð lengra en hann.
Eiður lék fyrir Chelsea þegar liðið var besta lið Englands og síðar fyrir Barcelona sem var besta lið Evrópu.
Eiður átti sinn besta tíma á ferlinum hjá Chelsea þar sem honum leið vel og stuðningsmenn elskuðu hann.
Eiður var kannski ekki þessi týpíski markaskorarari en hann minnti reglulega á sig.
Öll mörk hans fyrir Chelsea má sjá hér að neðan.