Ivan Rakitic fékk loforð um að byrja alla þá leiki sem hann vill ef hann yrði áfram í herbúðum Barcelona.
PSG vildi kaupa Rakitic á 80 milljónir punda í sumar og hafði miðjumaðurinn frá Króatíu áhuga á slíku.
Ernesto Valverde þjálfari Barcelona vildi hins vegar ekki missa kappann frá sér.
Valverde lofaði Rakitic því að hann myndi spila alla þá leiki sem hann vildi, svo lengi sem heilsan leyfði það.
Rakitic hefur spilað mikið á þessu tímabili og er nú frá vegna meiðsla.