Paul Pogba miðjumaður Manchester United er að gera allt til þess að ná heilsu á nýjan leik.
Franski miðjumaðurinn missti af síðasta leik United og var síðan í kjölfarið ekki með franska landsliðinu.
Pogba fékk frí frá æfngum frá Mourinho og skellti sér í sólina til Dubai, hann átti að mæta til æfinga á morgun.
Pogba vildi hins vegar koma til æfinga degi fyrr og var mættur á svæðið í dag.
Miðjumaðurinn vonast til þess að vera leikfær þegar United tekur á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.