Neymar leikmaður Brasilíu og PSG fór meiddur af velli í landsleik gegn Kamerún.
Leikurinn fór fram á heimavelli MK Dons en Neymar fór af velli eftir sex mínútna leik.
Ljóst er að kappinn gæti misst af stórum leikjum eins og viðureign gegn Liverpool í næstu viku.
Liðin eru saman í riðli í Meistaradeildinni og þar gæti PSG fallið úr leik með tapi.
Neymar meiddist á kálfa en það skýrist á næstu dögum hvort hann eigi einhvern möguleika á að spila leikinn.