Eden Hazard, leikmaður Belgíu, hefur farið yfir tap liðsins gegn Sviss um helgina en Sviss hafði betur 5-2.
Það kom verulega á óvart en Belgía komst í 2-0 áður en allt fór að klikka og vann Sviss þægilegan sigur.
Thorgan Hazard, bróðir Eden, skoraði bæði mörk Belga í fyrri hálfleik en Sviss svaraði fyrir sig og er nú á leið í undanúrslit Þjóðadeildarinnar.
,,Þetta leit út fyrir að vera auðveldur sigur en við hættum að gera auðveldu hlutina,“ sagði Hazard.
,,Við vörðumst ekki sem lið og leyfðum þeim að skora fimm mörk. Við áttum skilið að tapa leiknum.“
,,Við getum ekki útskýrt allt í fótboltanum. Sviss var með yfirhöndina allt í einu og við settum enga pressu á þá.“