Alex Sandro, leikmaður Juventus á Ítalíu, hefur áhuga á að spila í ensku úrvalsdeildinni einn daginn.
Sandro hefur stanslaust verið orðaður við ensk félög síðustu ár en Chelsea, Manchester City og Manchester United hafa verið nefnd.
Sandro er lykilmaður í liði Juventus en hann hefur spilað 16 leiki á tímabilinu og lagt upp tvö mörk.
Sandro er 27 ára gamall í dag og gæti tekið skrefið til Englands á næstunni.
,,Hver veit hvað mun gerast einn daginn? Mig langar að spila í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Sandro.
,,Ég er þó mjög ánægður þar sem ég er í dag, hjá Juventus og í þessari deild sem ég spila í.“