Luis Suarez, leikmaður Barcelona, segir liðsfélaga sínum Ousmane Dembele að hætta að fíflast og byrja að taka hlutunum alvarlega.
Dembele hefur komið sér í nokkur vesen síðan hann samdi við Barcelona á síðasta ári.
Suarez segir að flestir leikmenn nái vel saman við framherjann sem verður þó að breyta hegðun sinni aðeins.
,,Þetta snýst ekki um að aðlagast því samband hans við liðsfélagana er mjög gott,“ sagði Suarez.
,,En eins og nokkrir af liðsfélögum hans hafa sagt þá eru það forréttindi að fá að spila f´tobolta og hann þarf að einbeita sér meira.“
,,Það eru margir í Barcelona sem hann getur litið upp til varðandi hegðun. Hann á skilið að vera þarna og ná árangri með Barcelona.“