Antoine Griezmann leikmaður Atletico Madrid segir að það hafi verið erfitt að hafna Barcelona í sumar.
Griezmann var mjög nálægt því að fara til Katalóníu en hætti við á síðustu stundu.
,,Það var mjög erfitt að hafna Barcelona, Barcelona vildi mig, voru að hringja og senda skilaboð,“ sagði Griezmann.
,,Svo er ég hjá Atletico og við erum með verkefni, ég er mikilvægur leikmaður og verkefnið er byggt í kringum mig.“
,,Kannski var það líka að vera skósveinn hjá Messi sem spilaði þar með.“
,,Fólkið hjá Atletico gerir allt fyrir mig, þeir töluðu við mig og hækkuðu launin mín.“