Ensk blöð segja að Manchester United muni á nýjan leik reyna að kaupa Toby Alderweireld í janúar.
Þessi öflugi miðvörður hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning við Tottenham.
United neitaði að borga 60 milljónir punda fyrir hann í sumar en Alderweireld verður samningslaus í sumar.
Tottenham getur hins vegar framlengt samning hans um eitt ár, þá kemur klásúla í samningi hans og er hægt að kaupa hann á 24,5 milljónir punda.
Sagt er að United muni bjóða í Alderweireld í janúar og vonast til að fá hann á gjafaverði.