Alvaro Morata lék með spænska landsliðinu í kvöld sem mætti Bosníu í vináttuleik í Las Palmas.
Morata er framherji Chelsea á Englandi en hefur þurft að þola mikla gagnrýni á þessu tímabili.
Morata er sakaður um að fara alltof illa með færin sem hann fær og er tölfræði hans ekki sú besta.
Hann fékk gullið tækifæri til að skora í 1-0 sigri Spánar í kvöld en það tókst hins vegar ekki.
Morata fékk dauðafæri í leiknum en tókst á einhvern hátt að skjóta boltanum framhjá fyrir framan opið mark.
Þetta má sjá hér.
I prefer not to speak pic.twitter.com/Ph9nPkdPwH
— pinned tweet (@willianout) 18 November 2018