Aleksandar Mitrovic, leikmaður Fulham, lék með landsliði Serbíu í gær í 2-1 sigri á Svartfjallalandi.
Mitrovic skoraði annað mark Serba í leiknum en gat bætt við sínu öðru fyrir lok fyrri hálfleiks.
Mitrovic steig þá á vítapunktinn og ákvað að taka eina ‘Panenka’ spyrnu þar sem boltanum er vippað í mitt markið.
Memphis Depay, leikmaður hollenska landsliðsins, bauð upp á slíkt víti í 2-0 sigri á Frökkum á dögunum.
Skot Mitrovic fór hins vegar yfir markið og var hann mjög reiður út í sjálfan sig eftir leikinn.
,,Ég veit ekki af hverju ég ákvað að gera þetta. Ég horfði á Memphis Depay í gær og ákvað þetta á síðustu stundu. Ég er heimskur,“ sagði Mitrovic.