Paul Pogba, leikmaður Manchester United á Englandi, lærir að synda þessa dagana. Enskir og franskir fjölmiðlar greina frá.
Pogba vinnur með starfsfólki United sem kennir miðjumanninum sund. Hann lærði ekki að synda í æsku.
Greint er frá því að Pogba hafi ávallt verið nokkuð hræddur við að fá vatn í augun og fylgir því ákveðinn kvíði.
Pogba var ekki eins heppinn og aðrir jafnaldrar sínir sem lærðu að synda í skóla og fékk enga kennslu.
Frakkinn er 25 ára gamall í dag en hann vill ná tíu sundtímum fyrir árslok, það er hans persónulega markmið.
Hann hefur nýtt sér stutt frí undanfarna daga en hann er ekki partur af landsliðsverkefni Frakklands þessa stundina.