Gary Neville, sparkspekingur Sky Sports, hefur tjáð sig um varnarmanninn umdeilda, Dejan Lovren.
Skoðanir fólks á Lovren eru mismunandi en hann segist sjálfur vera einn besti varnarmaður heims.
Neville ræddi Lovren eftir leik Englands og Króatíu í dag en England hafði betur 2-1 í Þjóðadeildinni.
,,Ég verð að segja það að þegar Lovren var hjá Southampton þá elskaði ég hann. Það kom mér ekki á óvart þegar Liverpool keypti hann,“ sagði Neville.
,,Það tók hann smá tíma að aðlagast en núna er hann að verða betri. Hann er ástríðufullur þegar hann spilar fyrir þjóðina.“
,,Ég hélt að hann og Domagoj Vida yrðu í erfiðleikum á HM, ég hélt að hann myndi gefa þeim fleiri vandamál.“
,,Þeir stóðu sig þó nokkuð vel í leiknum. Hann hefur fulla trú á sjálfum sér og þegar hann er upp á sitt besta er hann í toppklassa.“