England 2-1 Króatía
0-1 Andrej Kramaric(57′)
1-1 Jesse Lingard(78′)
2-1 Harry Kane(85′)
England vann dramatískan sigur á Wembley í dag er liðið mætti Króatíu í Þjóðadeildinni.
England kom sér í efsta sætið í riðli 4 í A-deild og er á leið í úrslitakeppnina sem fer fram næsta sumar.
Króatía féll niður í B-deild eftir tapið í dag en liðið er með fjögur stig, þremur stigum á eftir Englandi.
Spánverjar eru svo í öðru sætinu með sex stig og halda sér í A-deild fyrir næstu keppni.
Það var eins og áður sagði dramatík á Wembley en Króatar komust yfir á 57. mínútu með marki frá Andrej Kramaric.
England jafnaði á 78. mínútu leiksins er varamaðurinn Jesse Lingard potaði boltanum í netið.
Harry Kane tryggði heimamönnum svo sigur er 85 mínútur voru á klukkunni og lokastaðan, 2-1.