Edinson Cavani, leikmaður Paris Saint-Germain, lét liðsfélaga sinn Neymar finna fyrir því á föstudaginn.
Leikmennirnir spila saman hjá PSG en þeir mættust er Úrúgvæ og Brasilía áttust við í vináttuleik. Neymar gerði eina mark leiksins úr vítaspyrnu fyrir Brassana.
Cavani braut þar nokkuð illa á Neymar sem lá sárþjáður eftir í grasinu. Cavani hefur nú tjáð sig um málið.
,,Þegar tvö lið frá Suður-Ameríku mætast þá er mikið undir. Þetta var góður leikur en við mótmæltum þessari vítaspyrnu,“ sagði Cavani.
,,Svona hlutir gerast. Það er alltaf gott að mæta stórliðum eins og Brasilíu og spila gegn leikmönnum eins og Neymar eða öðrum í liðinu.“
,,Það eru engir vináttuleikir í fótbolta. Stundum eru menn ákafir og andrúmsloftið er heitt en eftir leikinn þá er alltaf friður fyrir utan völlinn.“