Albert Hafsteinsson miðjumaður sem leikið hefur með ÍA æfir þessa dagana með FH.
Albert sem er öflugur spilari hefur alla tíð spilað á Akranesi.
Hann er fæddur árið 1996 en hefur spilað 84 leiki og skorað sex mörk í deild og bikar með FH.
Albert lék 17 leiki með ÍA í sumar þegar liðið komst aftur upp í Pepsi deildina.
Hann er í byrjunarliði FH þessa stundina sem leikur gegn Breiðabliki í Bose mótinu.
Samningur hans við ÍA er á enda og því getur hann samið frítt við önnur lið.