Goðsagnarkenndi spretthlauparinn Usain Bolt hefur undanfarna mánuði reynt að finna sér knattspyrnulið.
Bolt hefur æft með liðum eins og Borussia Dortmund, Stromsgodset og nú síðast Central Coast Mariners í Ástralíu.
Bolt náði ekki að semja við ástralska félagið á dögunum og er nú frjáls sinna ferða og getur samið við nýtt félag.
Tíminn er þó að renna út fyrir Bolt sem ætlar að gefa þessu út nóvember og gæti svo gefið drauminn upp á bátinn.
,,Ég hef fengið mörg tilboð frá mörgum liðum sem eru þarna úti,“ sagði Bolt við Omnisport.
,,Við munum taka ákvörðun fyrir lok nóvember. Það verður ákveðið hvort ég fari til annars félags eða hætti.“