Miðjumaðurinn Atli Arnarson hefur gert samning við nýliða HK í Pepsi-deild karla. Þetta var staðfest í kvöld.
Atli gerði tveggja ára samning við HK en liðið tryggði sér sæti í efstu deild á síðasta tímabili.
Þessi 24 ára gamli leikmaður kemur til HK frá ÍBV í Vestmannaeyjum þar sem hann lék undanfarin tvö tímabil.
Atli var áður á mála hjá Leikni Reykjavík og Tindastóli þar sem hann er uppalinn.
Hann hefur spilað 173 leiki í meistaraflokk og skorað 23 mörk. Mikill fengur fyrir HK sem stefnir hátt fyrir komandi átök.