Myndbandsdómgæsla (VAR) verður notað í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Þetta hafa félög í deildinni samþykkt.
Öll félög hittust á fundi í dag og þar var rætt um VAR, samþykkt var að inleiða það í deildinni.
VAR er að festa sig í sessi í fótboltanum en þetta hefur verið notað á stórmótum, er notað í nokkrum deildum og í enska bikarnum.
Enska úrvalsdeildin mun nú senda inn formlega umsókn til FIFA um að nota VAR á næstu leiktíð.
VAR hefur heppnast nokkuð vel og vonir standa til að hnökrar sem verið hafa, fari hægt og rólega út.