Birkir Bjarnason á við meiðsli að stríða og getur ekki leikið með A landsliði karla í leikjunum tveimur sem eru framundan – gegn Belgíu í Þjóðadeild UEFA á fimmtudag og svo vináttuleiknum gegn Katar í Eupen í Belgíu 19. nóvember.
Erik Hamrén, þjálfari íslenska liðsins, hefur kallað á Aron Elís Þrándarson í hópinn í stað Birkis. Aron Elís kemur til Belgíu í dag, miðvikudag.
Fyrir eru margir lykilmenn meiddir en þar má nefna Gylfa Þór Sigurðsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Emil Hallfreðsson, Jón Daða Böðvarsson og fleiri.
Ljóst er að verkefnið sem er fram undan er afar erfitt fyrir Hamren sem hefur ekki enn unnið leik í starfi.