Brasilíumaðurinn Richarlison hefur vakið athygli á þessu tímabili en hann leikur með Everton.
Richarlison vakti fyrst athygli með liði Watford á síðustu leiktíð og var í kjölfarið fenginn til Everton.
Saga leikmannsins er athyglisverð en hann fór á reynslu hjá mörgum liðum í heimalandinu áður en hann fékk loks tækifæri hjá Atletico Mineiro.
Hann segir nú að það hafi verið fótbolti eða ekkert og segir athyglisverða sögu af sjálfum sér.
,,Ég var ekki frábær í skóla, við getum orðað það þannig,“ sagði Richarlison í viðtali í dag.
,,Til þess að gefa ykkur hugmynd um hversu slæmt þetta var, ég náði ekki myndlist og frændi minn var kennarinn.“
Sem betur fer fyrir hann þá skipti það ekki miklu að lokum enda fær hann vel borgað fyrir það að spila í ensku úrvalsdeildinni.