Benjamin Mendy bakvörður Manchester City og Frakklands er yfirleitt í miklu stuði á samfélagsmiðlum.
Stuðið er stundum svo mikið að það hefur pirrað stjóra hans, Pep Guardiola.
Hann ákvað í dag að svara Donald Trump forseta Bandaríkjanna sem hafði tístað um Frakkland í gær.
,,Gerum Frakkland frábært aftur,“ skrifaði Trump en hann er ekki sáttur með hvernig Frakkar haga sér í pólitíkinni þessa dagana.
,,Ekki hafa áhyggjur vinur,“ skrifaði Mendy og setti tvær stjörnur með til að minna á Heimsmeistaratitil liðsins í sumar.
Dont worry bro ⭐️⭐️ https://t.co/dKBsmOjzoL
— Benjamin Mendy (@benmendy23) November 13, 2018