Antonio Rudiger, leikmaður Chelsea, segir það gott grín að hann hafi fengið gult spjald gegn Everton um helgina.
Bernard, leikmaður Everton, er ásakaður um að hafa skallað Rudiger sem fékk sjálfur gult spjald frá dómara leiksins, Kevin Friend.
Það er mikill stærðarmunur á þessum tveimur leikmönnum en Bernard er 163 sentímetrar á hæð og Rudiger 190 sentímetrar.
,,Ef VAR væri notað á Englandi þá væri Bernard í veseni,“ sagði Rudiger við blaðamenn.
,,Hann henti sér í jörðina og ég sagði honum að standa upp og svo kom hann að mér á hraðferð og setti ennið í mig. Ég fékk gult spjald, það er brandari.“
,,Dómarinn sá ekki neitt. Svo að mínu mati þá hlýtur þetta að hafa verið fjórði dómarinn sem sagði eitthvað, að ég hafi ögrað honum.“
,,Ég sagði honum bara að standa upp. Í lok dags þá hefði hann fengið rautt ef VAR væri notað.“