Það eru ekki allir stuðningsmenn Manchester United ánægðir með störf Jose Mourinho sem tók við félaginu fyrir þremur árum.
Margir vilja meina að United sé ekki að bæta sig undir stjórn Mourinho og er spilamennska liðsins oft undir væntingum.
Það er þó óhætt að segja að Portúgalinn hafi fengið að kaupa leikmenn síðan hann tók við keflinu.
Mourinho hefur keypt tíu leikmenn á Old Trafford síðan hann tók við en þeir hafa ekki allir náð að heilla.
Mourinho hefur keypt leikmenn fyrir 391 milljón punda sem er himinhá upphæð.
Hér fyrir neðan má sjá leikmennina sem Mourinho hefur fengið en einn af þeim er nú þegar farinn eða Henrikh Mkhitaryan sem spilar fyrir Arsenal.
Kaup Mourinho hjá United:
Eric Bailly: £30m
Henrikh Mkhitaryan: £26m
Paul Pogba: £89m
Romelu Lukaku: £75m
Nemanja Matic: £40m
Alexis Sanchez: £30m
Victor Lindelof: £31m
Lee Grant: £1.5m
Fred: £50m
Diogo Dalot: £19m
Samtals: £391m