Daniel Sturridge, leikmaður Liverpool, hefur verið ákærður af enska knattspyrnusambandinu.
Sturridge er ákærður fyrir það að brjóta veðmálareglur á Englandi en atvinnumenn mega alls ekki setja pening undir á leiki.
Ekki eru gefnar upp nákvæmar upplýsingar um brot Sturridge en atvikið átti sér stað í janúar í byrjun árs.
Sturridge var þá á mála hjá West Bromwich Albion en hann var þar í láni frá Liverpool.
Sturridge hefur um viku til að svara fyrir sig en þann 20. nóvember verður ákvörðun varðandi refsingu tekin.
Ekki er vitað hvort Sturridge hafi veðjað á leiki á Englandi eða ekki en það skiptir þó engu máli.