Þeir Anthony Martial og Paul Pogba verða ekki með franska landsliðinu sem á verkefni í þessum mánuði.
Þetta var staðfest í dag en báðir leikmennirnir hafa dregið sig úr hóp vegna meiðsla.
Martial lék allar 90 mínúturnar fyrir Manchester United í gær sem tapaði 3-1 fyrir Manchester City. Pogba var ekki í hóp.
Martial virðist hafa meiðst í þeim leik og verður ekki með gegn Hollandi í Þjóðadeildinni og Úrúgvæ í æfingaleik.
Tveir aðrir leikmenn hafa tekið þeirra pláss í hópnum en það eru þeir Moussa Sissoko og Alexandre Lacazette.
Sissoko spilar með Tottenham í ensku úrvalsdeildinni og Lacazette með grönnunum í Arsenal.