Sigríður Lára Garðarsdóttir hefur krotað undir samning við lið ÍBV í Pepsi-deild kvenna. Þetta hefur félagið staðfest.
Sigríður gerir fjögurra ára samning við ÍBV og kemur aftur til félagsins eftir stutt stopp með Lillestrom í Noregi.
Hún tekur við fyrirliðabandinu hjá liðinu en Sigríður á að baki yfir 160 leiki fyrir félagið og hefur gert 29 mörk.
Fjölmargir aðrir leikmenn skrifuðu undir samning við liðið um helgina og má nefna þær Kristínu Ernu Sigurlásdóttur, Shaneka Gordon og Júlíönu Sveinsdóttur.
Það eru frábærar fréttir fyrir ÍBV en Kristín er til að mynda markahæsti leikmaður í sögu félagsins.
Þá staðfesti félagið einnig að Jón Ólafur Daníelsson myndi taka við kvennaliði félagsins af Ian Jeffs.
Eftirtaldir leikmenn hafa gert nýja samninga í Eyjum:
Kristín Erla Sigurlásdóttir
Shaneka Gordon
Júlíana Sveinsdóttir
Sesselja Líf Valgeirsdóttir
Guðrún Bára Magnúsdóttir
Margrét Íris Einarsdóttir
Díana Helga Guðjónsdóttir
Inga Hanna Bergsdóttir
Sóldís Eva Gylfadóttir
Guðný Geirsdóttir
Sigríður Sæland Óðinsdóttir