Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn hefur lokað en það er samt alltaf fullt af sögum enda hætta erlend blöð aldrei að grafa upp sögurnar sem fljúga.
Hér má sjá pakka dagsins.
Pep Guardiola hafði stór áhrif á það að Raheem Sterling hafi skrifað undir nýjan samning við Manchester City. (Mirror)
Chelsea hefur áhuga á hinum 24 ára gamla Denis Suarez sem spilar með Barcelona. (Marca)
Arsenal vill skipta á Aaron Ramsey og Patrik Schick en sá síðarnefndi spilar með Roma á Ítalíu. (Star)
Eddie Howe er byrjaður að leita að eftirmanni Nathan Ake en hann óttast að missa leikmanninn til Manchester United eða Tottenham. (Sun)
Andy Robertson er að fá nýjan samning hjá Liverpool og mun tvöfalda laun sín. (Mirror)
Arsenal og Tottenham vilja fá Phil Jones, varnarmann Manchester United, sem verður samningslaus í sumar. (Sun)