Jose Mourinho, stjóri Manchester United, var nokkuð sáttur við spilamennsku sinna manna gegn Manchester City í kvöld.
City vann að lokum 3-1 á Etihad vellinum en United komst aftur inn í leikinn á 58. mínútu er Anthony Martial skoraði úr vítaspyrnu og staðan 2-1.
Ilkay Gundogan kláraði svo leikinn fyrir heimamenn undir lokin og var Mourinho óánægður með mistök sinna manna.
,,Þetta var ekki slæm frammistaða, þetta var frammistaða sem bauð þó upp á mistök og við borguðum fyrir það,“ sagði Mourinho.
,,Öll þrjú mörkin þeirra komu eftir okkar mistök – gegn liði eins og City þá er þér refsað en frammistaðan var ekki of slæmt.“
,,Fyrsta markið þeirra er slæmt af okkar hálfu og annað markið er verra.“
,,Svo komumst við inn í leikinn, þeir fundu fyrir því, Pep Guardiola fann fyrir því á hliðarlínunni, stuðningsmennirnir fundu fyrir þessu en svo drap þriðja markið allt saman.“