Liverpool 2-0 Fulham
1-0 Mo Salah(41′)
2-0 Xherdan Shaqiri(53′)
Liverpool vann þægilegan sigur í ensku úrvalsdeildinni í dag er liðið fékk Fulham í heimsókn.
Fulham hefur ekkert getað á leiktíðinni til þessa og situr á botni deildarinnar með aðeins fimm stig.
Liverpool kom sér tímabundið á top deildarinnar en Manchester City og Chelsea eiga leiki síðar í dag.
Mohamed Salah kom Liverpool yfir undir lok fyrri hálfleiks áður en Xherdan Shaqiri bætti við öðru í 2-0 sigri.