Chelsea 0-0 Everton
Chelsea tókst ekki að komast á toppinn í ensku úrvalsdeildinni í dag er liðið fékk Everton í heimsókn.
Chelsea var taplaust í deildinni fyrir leik dagsins og það varð engin breyting á því í dag.
Heimamönnum tókst hins vegar ekki að skora og lauk leiknum með markalausu jafntefli á Stamford Bridge.
Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton en fór haltrandi af velli í síðari hálfleik. Hann fékk högg í fyrri hálfleik eftir tæklingu Jorginho.