Pep Guardiola, stjóri Manchester City, var ánægður með sína menn í kvöld eftir 3-1 sigur á grönnunum í Manchester United.
Guardiola hrósaði spilamennsku sinna manna í síðari hálfleik og segir að sigurinn hafi verið verðskuldaður.
,,Við áttum sigurinn skilið, þetta var mun betra en á síðustu leiktíð,“ sagði Guardiola eftir leikinn.
,,Við sóttum ekki af bestu getu í fyrri hálfleik, þeir vörðust vel og voru mjög ákafir maður á mann.“
,,Í síðari hálfleik fundum við fleiri svæði og spiluðum vel en við vorum að spila gegn toppliði, það má ekki gleymast.“
,,Það má ekki gleyma því sem þeir hafa gert undanfarnar 1-2 vikur, Manchester United er magnað lið með mikil gæði og þeir þurfa ekki mikið til að refsa þér.“
Guardiola var svo spurður út í það hvort United væri endanlega komið úr titilbaráttunni en liðið er 12 stigum á eftir City.
,,Við erum í nóvember? Fyrri umferðin er ekki einu sinni búin, það er mikið sem getur breyst.“