Það er útlit fyrir það að framherjinn Danny Welbeck sé illa meiddur en hann byrjaði gegn Sporting í kvöld.
Welbeck og félagar í Arsenal fengu Sporting í heimsókn í Evrópudeildinni en leiknum lauk með markalausu jafntefli.
Welbeck entist ekki lengi í leiknum en hann var borinn af velli og kom Pierre-Emerick Aubameyang inná í hans stað.
Samkvæmt fregnum er Welbeck líklega ökklabrotinn en hann þurfti á súrefnisgrímu að halda.
Samherjar Welbeck höfðu áhyggjur af sínum manni sem lá sárþjáður eftir í grasinu.
Það er útlit fyrir að hann verði lengi frá.